fimmtudagur, 31. maí 2012

Æfingar í ágúst hjá 5.fl. ka. og kv.

Við erum á fullu að undirbúa næsta tímabil og það er ljóst að fyrstu æfingarnar / undirbúningstímabil verða í ágúst hjá 5.fl. ka og kv. í Austurbergi. 2. sinnum í viku í húsi, og þjálfarar ákveða útihlaupi eða annað samhliða.  ( sjá mynd hér að neðan )

Æfingar 20., 24., 27. og 31 ágúst hjá 4.fl. ka og kv.

Þjálfarar senda út nánari tímasetningar þegar nær dregur ásamt því að við setjum það á Facebook ÍR Handbolta.
 
Í lok ágúst verður síðan búið að raða niður æfingatímum hjá öllum flokkum og þá kemur planið fyrir tímabilið 2012-2013.
 
Við vonum síðan að þið nýtið ykkur handboltanámskeið ÍR 11.-22 júní og 7.-17 ágúst, og verðið klár fyrir handboltatímabilið næsta haust.

Hafið það gott í sumar og við hvetjum ykkur til að skoða myndbandið með Guðna Má. leikstjórnanda ÍR hér að neðan, en hann er maskína á undirbúningstímabilinu!!

http://www.karvelio.com/2011/08/29/undirbuningstimabil-i-handbolta/

föstudagur, 25. maí 2012

ÍR-ingar (98.árg.) úrtakshópur í Handboltaskóla HSÍ helgina 8.-10 júní.



Karen Tinna Demian, Aníta Birna Berndsen, Kolfinna Birkisdóttir, Hildur Lovísa Hlynsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson, Bjarki Gylfason, Kristófer Daði Ágústsson og Jóhann Karl Aðalsteinson eru boðuð í Handboltaskóla HSÍ helgina 8.-10 júní og munu þau æfa undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ.
En þetta er fyrsta skrefið að yngri landsliðum Íslands , enda eru þetta framtíðar landsliðsfólk hjá okkur sem gaman verður að fylgjast með.  
Leggið ykkur 110% fram, hafið gaman af þessu og gangi ykkur vel !!!
Flottur hópur sem boðaður var í Handboltaskóla HSÍ

miðvikudagur, 23. maí 2012

5.fl. (eldra ár ) og 4.fl.B tímabilið 2011-2012 Slútt á tímabili Leikherbergið hjá Marel - Fimmtudaginn 31. maí kl. 17-20 og Hamborgarafabrikka eftir það.


Varðandi Hamborgarafabrikku og slút hjá 5.fl. (eldra ár) og 4.fl.B tímabilið 2011-2012,
 þá er Magga búin að taka frá "leikherbergið" í Marel fimmtudaginn í næstu viku ( 31.maí ) frá 17 – 20.  og við pöntum síðan borð fyrir hópinn á Hamborgarafabrikkunni.

Þetta verður keppnis partí og þið komið með komment á skipulag hér að neðan,   og sjáið hvort plan vegna bíla gengur upp..  t.d. ef einhver er á 7 manna þá gætu 3. bílar sloppið.
 Listi með strákunum,  sem spiluðu sem 5.fl. (eldra ár ) og 4.fl.B  tímabilið 2011-2012 er hér að neðan og Hamborgarafabrikku matseðil er hægt að skoða hér > http://fabrikkan.is/matsedill_blad.html




Verð á borgurum er frá 1500 -1900 þannig að með gosi er þetta ca. 2000-2500 kr. þannig að hver strákur á að mæta með 2.500kr.

Hópurinn 2011 – 2012
5.fl. eldra   - Arnar Freyr,  Bjarki ,  Danni,  Finnur Leó,  Gunnbjörn,  Jóhann Karl,  Kristó,   Tindur,  Viktor Ingi , Sveinn Andri, Eyþór Waage, Skúli
4.fl.   Stefán og Leifur
Þjálfari Arnór Stef

14 strákar ..   í það heila +  4. Viðbót á bíl með Arnór þjálfara   
Mæting hjá þessum strákum í Marel  (Austurhrauni 9 - 210210 Garðabæ)  kl. 17:00 fimmtudag 31.maí.   - http://ja.is/kort/#q=index_id%3A1297607&x=357513&y=400496&z=9   
     
Magga   Bíll 1 -  Bjarki ,  Danni,   ,  Finnur Leó,  Viktor Ingi
Arnór    Bíll 2 -  Arnar Freyr,   Tindur,  Leifur, Stefán
Steini  -  Bíll 3 -  Gunnbjörn,  Jóhann Karl,  Kristó
Sveinn   Bíll 4 –     Eyþór , Skúli , Sveinn Andri


Það verða því 4. bílar sem þarf og ég panta borð fyrir 18 á Hamborgarafabrikku þar sem ég býst við að bílstjórar borði líka , er það ekki bara málið ?   

Netföng foreldra og þjálfara samkv. skráningarkerfi Nóra þannig að allir eiga að vera í þessum póst. 

Sendið staðfestingu til baka um að ykkar strákur mæti á ajo@klettur.is  og margreth28@hotmail.com


Handboltaakademía ÍR - Skráning í Handboltaskóla Bjarna Fritz og Sturlu Ásgeirs stendur yfir

Mikið er lagt upp úr því að vinna með hverjum og einum til að bæta veika punkta sem koma í ljós við leikgreiningu, og við vitum að það skilar miklu,  því sem dæmi höfum við einstaklinga í 98 árg. (ÍR 5.flokkur eldra ár ka. og kv. ) sem hafa farið 3 sumur á þetta námskeið og bætt sig gríðalega mikið í hvert skipti.   Enda eru flestir í þeim hóp búnir að ganga frá skráningu aftur á þetta námskeið.
Æfingar standa í 2 klst. í senn hvern dag þar sem afreksmannahugsun verður í hávegum höfð, ásamt því að margar nýjar og skemmtilegar æfingar munu sjást þar sem Bjarni var á þjálfaranámskeiði hjá Fusche Berlín hjá Degi Sigurðssyni sem valinn var þjálfari ársins í þýsku úrvalsdeildinni. 

Líkt og áður munu góðir gestir mæta á námskeiðið og ausa úr sínum viskubrunni.

Bónus verða síðan morgunæfingarnar sem verða á sínum stað enda komu þær skemmtilega út seinasta sumar, ásamt því að verlaun verða veitt fyrir þá sem skara fram úr og auk þess fá allir viðurkenningaskjal og umsögn.

Skráning > http://www.ir.is/Sumarnamskeid2012/HandboltaskoliIR/

Við hvetjum ykkur til að nýta þetta flotta námskeið hjá Handboltaakademíu ÍR, Bjarna Fritz og Sturlu Ásgeirs 11. - 22 júní.

Æfingatímar eru eftirfarandi mv. aldurshóp:
11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00

Verð: 12.900 kr. júní / 11.900 kr. ágúst



mánudagur, 14. maí 2012

Handboltaskóli ÍR, Bjarna Fritz og Stulla


Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)

Æfingatímar eru eftirfarandi:
 11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00

föstudagur, 11. maí 2012

Eldra- og yngra árið í 5.fl. karla eru Reykjavíkurmeistarar 2012 !!!

Reykjavíkurmót stendur nú yfir og 5.fl. karla hefur lagt línurnar þar sem bæði eldra- og yngra árið eru orðnir Reykjavíkurmeistarar 2012!!! Mynd hér að neðan er af eldra ári okkar og var hún tekin fyrr í kvöld. Flottir strákar sem við eigum, til hamingju og áfram ÍR!!! Við hvejum foreldra til að senda okkur myndir af öðrum flokkum til að við getum sett þær hérna inn á myndaalbúm hjá 5. flokk og Facebook ÍR Handbolta



5.fl. karla (eldra ár) Reykjavíkurmeistarar 2012
 Allar myndir fara á NÝJA FACEBOOK ÍR HANDBOLTA, og þær fara AÐEINS inn á nýju Facebook síðuna okkar ,, ÞÚ  ERT VONANDI VINUR OKKAR ÞAR LÍKA

>> http://www.facebook.com/pages/%C3%8DR-Handbolti/241454399199296

Smelltu þér yfir núna og ýttu á "líkar þetta" til að verða vinur okkar þar.


Hlökkum til að fá þig í hópinn.

Kveðja ÍR Handbolti

http://www.facebook.com/pages/%C3%8DR-Handbolti/241454399199296

þriðjudagur, 8. maí 2012

Reykjavíkurmótið

Reykjavíkurmótið verður spilað hjá Fylki núna í vikunni  (leiktími er 2x10)

Yngra ár - Fimmtudagur 10. maí
17:00  ÍR 1 - Fjölnir 2
17:00  ÍR 2 - Fjölnir 1
17:40  ÍR 1 - Fram
17:40  ÍR 2 - Víkingur
19:00  Úrslitaleikur

Eldra ár - Föstudagur 11. maí
16:00  ÍR - Fylkir
16:40  ÍR - Fjölnir
18:00  ÍR - Fram 2
18:40  ÍR - Fram 1